Ef þú útskýrir sama hlutinn fyrir gervigreindinni aftur og aftur, til dæmis hvernig tilboð eiga að líta út eða hvernig á að flokka kostnað, þá er kominn tími á færni (e. skills).

Hvað er færni?

Færni er mappa með leiðbeiningum, og stundum sniðmátum og skriftum, sem Claude sækir þegar hún á við verkið. Claude les fyrst aðeins stutta lýsingu af hverri færni og hleður restinni inn bara þegar þarf. Þú getur því átt margar færnir án þess að þær flækist fyrir.

Claude kemur með innbyggða færni fyrir Word, Excel, PowerPoint og PDF. Svo geturðu búið til þína eigin, og í Team og Enterprise getur stjórnandi dreift færni til allra starfsmanna.

Dæmi úr rekstri

  • Tilboð: sniðmát, verðskrá og tónn fyrirtækisins, svo hvert tilboð lítur eins út.
  • Kostnaðarflokkun: hvaða lyklar eiga við hvaða birgja, og hvað á að senda bókaranum.
  • Ráðningar: uppsetning auglýsinga og spurningar sem lagðar eru fyrir í viðtali.
  • Mánaðarskýrsla: hvaða tölur, í hvaða röð og á hvaða sniði.

Hvernig býrðu hana til?

Einfaldasta færnin er ein Markdown-skrá, SKILL.md, með nafni og lýsingu efst:

---
name: tilbod
description: Býr til tilboð á sniði fyrirtækisins. Notaðu þegar beðið er um tilboð eða verðáætlun.
---

1. Byrjaðu á stuttri samantekt á verkinu.
2. Notaðu verðskrána í verdskra.md.
3. Hafðu tóninn vinalegan og skýran, án tæknimáls.

Lýsingin skiptir mestu máli, því það er hún sem segir Claude hvenær færnin á við. Þú setur skrána í möppu, þjappar möppunni í ZIP og hleður henni upp undir Customize > Skills. Kveikja þarf á keyrslu kóða (e. code execution) í stillingum.

Enn einfaldara: biddu Claude um að búa færnina til fyrir þig. Lýstu verklaginu og Claude skrifar skrána og gengur frá möppunni.

Fréttir vikunnar: opinn staðall

Í gær, 22. október, afhenti Anthropic Agent Skills staðalinn til Agentic AI Foundation, sem heyrir undir Linux Foundation og hýsir líka MCP. Yfir 70 kerfi styðja staðalinn nú þegar, þar á meðal ChatGPT, Cursor, GitHub Copilot og VS Code. Færni sem þú skrifar einu sinni er því ekki bundin við eitt fyrirtæki.

Heimildir