Í gær, 9. nóvember, kynnti Anthropic Claude Fable 5.2, öflugasta líkanið sitt til þessa. Þá eru fjögur líkön í boði og ekki augljóst hvert á að velja. Hér er einföld leiðbeining.

Líkönin fjögur

LíkanHentar íVerð á milljón tóka (inn / út)
Haiku 5.5Mikið magn einfaldra verka: flokkun, samantektir, útdráttur0,10 $ / 0,50 $
Sonnet 5.5Dagleg vinna þar sem hraði skiptir máli2 $ / 10 $
Opus 5.5Flest verk: greining, lengri verkefni og fulltrúar (e. agents)4 $ / 20 $
Fable 5.2Erfiðustu verkin: djúp greining, fjármál, löng sjálfvirk verk8 $ / 40 $

Ráð Anthropic sjálfs: ef þú ert í vafa, byrjaðu á Opus 5.5.

Í áskrift skiptir verðið minna máli

Ef þú notar Claude í Pro, Max eða Team borgarðu fast verð og velur líkanið í spjallinu. Samkvæmt Anthropic er Fable 5.2 innifalið í Pro og venjulegum Team-sætum upp að helmingi vikulegrar notkunar. Notaðu Opus eða Sonnet í dagleg verk og geymdu Fable fyrir þau stóru.

Í sjálfvirkni skiptir verðið öllu

Þegar gervigreindin vinnur sjálfvirkt og þú borgar eftir notkun er Haiku 40 sinnum ódýrara en Opus á hvern tóka sem fer inn. Anthropic mælir með tveimur leiðum:

  • Byrja ódýrt: prófaðu Haiku fyrst og færðu þig upp aðeins ef niðurstöðurnar eru ekki nógu góðar.
  • Byrja öflugt: byrjaðu á Opus og farðu í Fable ef Opus ræður ekki við verkið.

Algeng uppsetning er að öflugra líkan stýri verkinu sem aðalfulltrúi og sendi einföldu hlutana á undirfulltrúa sem keyra á Haiku. Þannig færðu gæðin þar sem þau skipta máli og lágt verð á restinni.

Hvað með Mythos 5.2?

Mythos er sama líkan og Fable, en með færri öryggishömlum á sviði netöryggis og líffræði. Það er aðeins í boði fyrir stofnanir sem hafa farið í gegnum staðfestingu hjá Anthropic og skiptir flest fyrirtæki ekki máli.

Þumalputtaregla

Byrjaðu á Opus. Ef verkið er einfalt og endurtekið, prófaðu Haiku. Ef Opus ræður ekki við það, prófaðu Fable. Og prófaðu alltaf með þínum eigin gögnum, ekki bara dæmum.

Heimildir